Við fórum í okkar fyrstu tjaldútilegu um helgina. Þetta var ekki bara fyrsta útlega Fjalars Hrafns og Auðar Ísoldar heldur einnig fyrsta útilega okkar Védísar saman. Ferðinni var heitið, ásamt froskafjölskyldunni, til Smálandanna í Svíþjóð. Eftir að hafa tekið HH-ferjuna frá Helsingör til Helsingborg lá leiðinn beinustu leið til Vaxjö í miðjum smálöndunum. Reyndar kom til tals á leiðinni að snúa við því aðra eins rigningu höfðum við aldrei sé á okkar löngu/stuttu ævi. Reyndar var nokkuð bjart í Vaxjö þegar við komum þangað og tjölduðum, en það átti eftir breytast strax um kvöldið. Þá má með nokkru sanni segja að það hafi rignt nánast látlaust frá föstudagskveldi fram á sunnudagsmorgun. Til þessarar ferðar var fjárfest í nýju tjaldi, vindsæng, borði og stólum og einum bílstól, sem duga á næstu árin. Að minnsta kosti mun tjaldið þola íslenskar aðstæður, því það kom berlega í ljós í úrhellisrigningunni í Smálöndunum. Þó veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska, gerðum við ýmislegt. Fórum í vatnsrennibrautagarð, elg-safarí, Kosta Boda, komum við í Emaljunga og borðuðum á Líbönskum stað og fórum tvisvar sinnum í Systembulaget, þar sem ég var beðin um skilríki í seinna skiptið þegar ég keypti eina litla rauðvínsflösku. Ferðinni lauk svo í seint á sunnudagskvöldið þegar við keyrðum í fyrsta skiptið yfir Öresundsbrúnna á leið okkar til Kaupmannahafnar.
Þórir