LINKS
ARCHIVE
« May 2005 »
S M T W T F S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
Entries by Topic
All topics  «
Friday, 29 September 2006
S?kkula?i-?legg

Einn dag í þeirri viku sem Fjalar Hrafn er í bæjar-hópnum taka börnin fullan þátt í undirbúningi hádegismatarins.  Þá er hverju barni gert að koma með eitthvað fyrirfram ákveðið.  Fram að þessu hefur Fjalar komið með 1Kg af gulrótum og 3 dósir af túnfisk.  Á miðvikudaginn síðasta var hann hins vegar vinsamlegast beðið um að koma með súkkulaði-álegg.  Súkkulaði-álegg hefur aldrei, og mun líklega seint,  verða keypt á mitt heimili og því er finnst mér það svolítið einkennilegt að leikskólinn sjálfur ýti undir svona.  Þetta minnir mig á það þegar Fjalar Hrafn borðaði sælgæti í fyrsta sinn.  Það var í desember 2004 þegar börnin á Svanereden fengu nammi í jóladagatalinu nokkra daga.  Ég spurði einn starfsmann á leikskólanum hans Fjalars hvað þeim finnst um þegar börnin koma með súkkulaði á brauðið sitt og svarið var að það væri í lagi stöku sinnum en jógúrt væru þeir algerlega á móti vegna mikils magns sykurs í því.

Þórir


Skra? af ?O/VHE at 12:01 AM MEST
Updated: Tuesday, 3 October 2006 8:38 AM MEST
Post Comment | Permalink

View Latest Entries