LINKS
ARCHIVE
« May 2005 »
S M T W T F S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
Entries by Topic
All topics  «
Wednesday, 27 September 2006
Plokksaltfiskur

Við vorum með matarklúbbinn í gær.  Að þessu sinni ákvað ég að elda íslenskan saltfisk.  Í stað þess að sjóða hann bara fékk ég uppskrift hjá Stellu af nokkurs konar plokksaltfisk.  Reyndar hljóðaði uppskriftin nokkurn veginn á þessa leið:  "Sjóðið saltfisk og kartöflur.  Á meðan kartöflurnar eru skrældar skal saltfiskurinn liggja í helling af olívuolíu.  All er svo maukað saman með miklum hvítlauk og mikilli olívuolíu.  Þetta er svo sett í eldfast mót og parmesan-ostur rifin yfir og hitað upp í ofninum".  Það sem slæmt var við þessa uppskrift var, að ekki voru nein hlutföll nefnd og því þurfti ég að prófa mig áfram.  Undir lokin hafði ég notað 1 kíló af kartöflum, 1200 gr af saltfisk, 3/4 hvítlauk og 400 ml af olívuolíu.  Skemmst er frá því að segja að þetta smakkaðist andskoti vel, fiskurinn hefði reyndar mátt vera aðeins saltari.  Allur matarklúbburinn var sáttur og meira að segja börnin borðuðu vel.  Þetta er þá í annað sinn sem ég elda saltfisk á síðustu þremur vikum.  Þegar mamma var einmitt í heimsókn, steikti ég saltfiskinn.  Eftir þessar saltfisktilraunir verður erfitt að "bara" sjóða hann.

Þórir


Skra? af ?O/VHE at 12:01 AM MEST
Post Comment | Permalink

View Latest Entries