Tónleikarnir tókust með miklum ágætum og við erum strax farnir að hugsa um þá næstu. Skemmst er frá því að segja að þeir stóðu undir sér og gott betur en það. Þetta hafa þó verið ansi erfiðir dagar fyrir tónleikahaldarana. Miðvikudagskvöldið endaði í fylleríi (með Stafræni Hákoni) með tilheyrandi þynnku daginn eftir. Fimmtudagskvöldið fór í að kynnast meðlimum Singapore Sling og koma þeim fyrir í Kaupmannahöfn. Þá nóttina svaf ég 4 tíma. Föstudagurinn var svo algert "hell". Það er ansi margt sem tónleikahaldarar þurfa að hugsa um og dagurinn varð því ansi langur. Hófst klukkan 8 og endaði klukkan hálf þrju um nóttina. Aðfaranótt laugardags svaf ég 5 tíma því við þurftum að mæta snemma upp í Loppen og skila öllu dótinu og ganga frá. Það var því ansi þreyttur gjaldkeri Beatless Propaganda sem lagðist á koddann hálf tíu í gærkveldi. Ekki skemmdi það svo fyrir að Védís leyfði mér svo að sofa út í morgun.
Eins og margir hafa tekið eftir þá er ekki hægt að skrifa comment við færslurnar. Ég hef tilkynnt þetta vandamál til Tripod og eru þeir að vinna í þessum "as we speak", ef ég skil svar þeirra rétt: "Our engineering team is currently evaluating the root cause of the issue that you're experiencing, and will hopefully have it resolved as soon as possible
".
Þórir