Ég skilaði mastersritgerðinni minni í gærdag. Mikill léttir og nú verður tekið 10 daga frí frá "Heavy-Tailed Multivariate Distributions for Insurance Losses" eða þar til ég þarf að undirbúa vörnina. Hún verður þann 13. október næstkomandi.
Síðustu tvær vikur hafa verið nokkuð erfiðar, ég á endasprettinum og Védís að byrja sitt nám. Til þess að létta undir hjá okkur, kom mamma og var hjá okkur í 10 daga og sá um heimilið, uppvask, þvott, þrif og þvo kaffibollann minn. Alveg ómetanleg hjálp sem erfitt verður að endurgjalda.
Það mun ekki líða svo langur tími á milli dagbókarskrifa framvegis.
Þórir
Skra? af ?O/VHE
at 8:12 PM MEST