Pabbi var að labba út úr dyrunum rétt í þessu. Hann er búinn að vera síðan á miðvikudaginn. Við höfum reynt að gera sitt lítið af hverju með honum, m.a. hjóluðum á Bakken á laugardaginn og fórum út að borða í gærkveldi. Reyndar var Auður Ísold komin með hita þegar við sóttum hana á leikskólann á fimmtudaginn en var orðin hitalaus á föstudaginn og hefur verið hress síðan. Fjalar Hrafn tók sér svo frí í sínum leikskóla á föstudaginn og var meira og minna út með afa sínum þann dag.
Ferðin norður á Bakken var skemmtileg. Ekki tók lengur en 5 korter að hjóla þessa 14,5 km. leið. Reyndar gátum við lítið verið í skemmtigarðinum vegna geitunga og stoppuðum því lengur við á ströndinni án þess þó að fara í sjóinn.
Þórir