LINKS
ARCHIVE
« May 2005 »
S M T W T F S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
Entries by Topic
All topics  «
Monday, 14 August 2006
Tjaldfer?

Við fórum í okkar fyrstu tjaldútilegu um helgina. Þetta var ekki bara fyrsta útlega Fjalars Hrafns og Auðar Ísoldar heldur einnig fyrsta útilega okkar Védísar saman.  Ferðinni var heitið, ásamt froskafjölskyldunni, til Smálandanna í Svíþjóð.  Eftir að hafa tekið HH-ferjuna frá Helsingör til Helsingborg lá leiðinn beinustu leið til Vaxjö í miðjum smálöndunum.  Reyndar kom til tals á leiðinni að snúa við því aðra eins rigningu höfðum við aldrei sé á okkar löngu/stuttu ævi. Reyndar var nokkuð bjart í Vaxjö þegar við komum þangað og tjölduðum, en það átti eftir breytast strax um kvöldið. Þá má með nokkru sanni segja að það hafi rignt nánast látlaust frá föstudagskveldi fram á sunnudagsmorgun.  Til þessarar ferðar var fjárfest í nýju tjaldi, vindsæng, borði og stólum og einum bílstól, sem duga á næstu árin.  Að minnsta kosti mun tjaldið þola íslenskar aðstæður, því það kom berlega í ljós í úrhellisrigningunni í Smálöndunum.  Þó veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska, gerðum við ýmislegt. Fórum í vatnsrennibrautagarð, elg-safarí, Kosta Boda, komum við í Emaljunga og borðuðum á Líbönskum stað og fórum tvisvar sinnum í Systembulaget, þar sem ég var beðin um skilríki í seinna skiptið þegar ég keypti eina litla rauðvínsflösku. Ferðinni lauk svo í seint á sunnudagskvöldið þegar við keyrðum í fyrsta skiptið yfir Öresundsbrúnna á leið okkar til Kaupmannahafnar.

Þórir


Skra? af ?O/VHE at 4:31 PM MEST
Post Comment | Permalink

View Latest Entries