Flestir kannast við það, að fá að lag á heilann. Nú hefur Auður Ísold lent í þessum óskunda, og það er ekki bara eitt lag sem hún syngur í sífellu, heldur tvö. Þau eru "Lille Peter Edderkop" og "Mester Jakob". Reyndar kann hún bara eina línu í Edderkop (kravled' op ad muren) og tvær línur í Mester Jakob (sover du, sover du & Bim bam bum! Bim bam bum!) . Fjalar Hrafn reynir eftir bestu getu að aðstoða hana með sönginn þegar hún byrjar en það getur oft reynst erfitt þegar hún tönglast stöðugt á sömu setningunni og kemst ekkert áfram.![]()
Þórir
Skra? af ?O/VHE
at 12:01 AM MEST
Updated: Sunday, 6 August 2006 2:36 PM MEST