Í gærkveldi kláraði ég síðustu bókina með Arnaldi Indriðasyni. Þetta væri líklega ekki til frásögu færandi nema hvað að ég byrjaði á þeirri fyrstu (Synir Duftsins) 7. júní síðastliðinn og lauk við þá næstsíðustu (Kleifarvatn) í gærkveldi. Þá síðustu, Vetrarborgin, las ég um síðustu jól og varð fyrir miklum vonbrigðum en ákvað að gefa fyrri bókum hans möguleika, með fyrrgreindri niðurstöðu. Topp 10 listinn minn er því eftirfarandi (síðasta númerið er ekki innsláttarvilla):
1.-2. Mýrin & Napóleonskjölin
3.-4. Grafarþögn & Kleifarvatn
5. Synir Duftsins
6. Dauðarósir
7. Röddin
8. Bettý
20. Vetrarborgin
Þórir
Skra? af ?O/VHE
at 12:01 AM MEST
Updated: Sunday, 6 August 2006 7:52 PM MEST