Við borðuðum í síðasta sinn með Beggu og Benna í gærkveldi. Þau flytja til Íslands í næstu viku. Af því tilefni buðum við einnig Benna stóra (pabbi Benna) og gæddum okkur á brasilískri nautalund keypta í Þýskalandi um síðustu páska.
Það verður erfitt að horfa á eftir þeim fara eftir þriggja ára vináttu og þá tala ég einna helst um vinátta þeirra Fjalars og Benna, og undir það síðasta Auðar. Það verður erfitt að útskýra það það fyrir þeim að Benna sjá þau ekki aftur fyrr en eftir langan tíma.
Við óskum ykkur alls hins besta á Íslandi og hlökkum til að hitta ykkur sem allra, allra fyrst.
Þórir, Védís, Fjalar Hrafn og Auður Ísold
Skra? af ?O/VHE
at 12:01 AM MEST
Updated: Thursday, 20 July 2006 9:21 PM MEST