LINKS
ARCHIVE
« May 2005 »
S M T W T F S
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31
Entries by Topic
All topics  «
Monday, 17 July 2006
Heimsoknir

Við fengum heimsókn í síðustu viku. Á þriðjudaginn kom María. Hún var á heimleið frá Suður-Kóreu, þar sem hún tók þátt í ólympíuleikunum í Efnafræði, fyrir Íslandshönd. Skemmst er frá að segja að hún fékk brons-verðlaun á leikunumSmile. Á fimmtudaginn kom svo Bjössi, kærastinn hennar, og voru þau hjá okkur þar til í gærkveldi, að þau flugum saman til Íslands.  Á föstudaginn fengum við svo pössun fyrir börnin og fórum út að borða á Spicylicious sem er thailenskur/vietnamskur veitingastaður á Istegade.  Á laugardaginn fóru skötuhjúin í bæinn og við Védís undirbjuggum grillmat.  Í gær var svo farið á ströndina í 26 stiga hita. Það þarf líklega ekki að nefna það sérstaklega, en bjór var drukkinn "continuously".  Takk fyrir heimsóknina og verðið velkomin aftur.

Þórir


Skra? af ?O/VHE at 10:55 AM MEST
Updated: Monday, 17 July 2006 10:59 AM MEST
Post Comment | Permalink

View Latest Entries