| « |
April 2007 |
» |
 |
| S |
M |
T |
W |
T |
F |
S |
| 1 |
2 |
3 |
4 |
5 |
6 |
7 |
| 8 |
9 |
10 |
11 |
12 |
13 |
14 |
| 15 |
16 |
17 |
18 |
19 |
20 |
21 |
| 22 |
23 |
24 |
25 |
26 |
27 |
28 |
| 29 |
30 |
|
|
Dagbokin
Thursday, 19 April 2007
Litrofi?....
.... má örugglega finna framan í dóttir minni núna. Kúlan hennar er óðum að minnka og færast niður á við.... og núna er hún með risakúlu og sár á enninu, glóðurauga á báðum og svo í þokkabót vantar í hana framtönn. Það er ekki sjón að sjá barnið og mamman litin hornauga hvert sem við förum. En litli villingurinn hjólar eins og herforingi í leikskólann á hverjum morgni og lætur augngoturnar ekkert á sig fá:) Védís
Posted by ?O/VHE
at 4:32 AM EDT
Sunday, 15 April 2007
Laugardagur til (?)lukku
Gærdagurinn byrjaði ekki vel.... kl 9:30 hringdi Ásta og tilkynnti um lúsafaraldur hjá hennar fjölskyldu og þar sem við vorum í heila viku saman í sumarbústað, var það næsta víst að við værum líka lúsug. Það uppstóð panik og börn og foreldrar voru kembd og viti menn...... 2 litlar lýs, önnur í Fjalari og hin í Auði..... húffff. Hlaupið út í apótek og keypt lúsasjampó og allir fengu lúsameðferð. Hlaupið út í þvottahús með allar sængur, kodda, púða, lín, yfirhafnir, húfur, handklæði. Allt sem ekki er hægt að þvo sett í sóttkví (þ.á.m hjólahjálmar). Og að lokum kl 15 komumst við loksins út í 20 stiga hitann. Ekki meira með það, vonumst til að við höfum náð fyrir faraldurinn. Fjalar Hrafn og Auður Ísold fengu hjól helgina fyrir páska og Auður Ísold er rosalega dugleg að hjóla.... og í gær lofuðum við henni að hjóla þrátt fyrir að hjólahjálmurinn hennar hafi verið í sóttkví. Og auðvitað gerðist óhappið akkúrat þá.... mamman leit af henni eitt augnablik og þá var hún búin að hjóla niður flísalagðan ramp og þar sem hún er ekki búin að ná valdi á bremsunum þá hjólaði hún beint á flísalögðu tröppurnar sem eru fyrir framan rampinn, flaug fram fyrir sig og lenti á enninu beint á eitt hornið á flísalögðu tröppunum...... og fékk þá stærstu kúlu sem ég hef á ævinni séð. Við upp á slysó vegna þess að mamman varð alvarlega skelkuð. Læknunum tókst að róa mömmuna og við fórum aftur heim. Auður Ísold vaknaði í morgun hress og glöð að vanda og er núna með Fjalari og Þóri á pabbamorgni (pabbar hittast kl. 9 á hverjum sunnudagsmorgni með börnin sín). Mikið rosalega varð ég hrædd og mikið rosalega fá börnin mín ALDREI að hjóla án hjólahjálms aftur..... Védís
Posted by ?O/VHE
at 4:15 AM EDT
Tuesday, 3 April 2007
Ut a? bor?a
Fór út að borða í boði SAS-Institute i gærkveldi. Okkur Tore, yfirmanni mínum hjá Købstædernes Forsikring, var boðið í tilefni af undirskrift samstarfssamings okkar á milli. Fyrir valinu var Formel B, einn af nokkrum Michelin-stjörnu stöðunum í Kaupmannahöfn, en hefur það fram yfir hina að vera með svokallaða "rising star" sem þýðir að mögulega fær staðurinn stjörnu númer tvö á næsta ári. Matseðillinn stóð af eftirfarandi: - (Einhvers konar) kampavín meðan við pöntuðum
- Tvenns konar appitiserear (man ekki alveg hvað það var)
- Venø Østers med jordskokker, peberrod og brøndkarse
- Slethvar (fiskur) med foie gras ravioli, gulerødder, estragon og citron
- Torsk med glaseret hummer, kålrabi, endive og blodappelsin
- Braiseret kalveskank med små hvidløg, daddeltomat og ramsløg
- Canette (lítil ønd) med stegt foie gras i pain d'épice, rødbede og grønkål
- Ostasmakk
- Passion en surprise med lakridsrodsiscreme og mousse.
Með þessu var svo vínmatseðill sérhannaður fyrir matinn. Að lokum var svo XO koníak og súkkulaði. Þetta var einu orði sagt gargandisnilld! Hvernig Foie gras er búið til er dálítið merkilegt, um það má lesa hér. Þórir
Posted by ?O/VHE
at 12:01 AM EDT
Friday, 30 March 2007
Wednesday, 28 March 2007
S?gur af ...
Fór til Chicago á föstudaginn og kom heim í gærmorgun. Upphaflega átti ég að fara á fimmtudagsmorguninn og var reyndar kominn á flugvöllinn ásamt Árósar-Dísu og við búin að bíða í biðröð í 75 mín. þegar mér var meinaður aðgangur vegna non-machine readable vegabréfs. Því fór Dísa ein til Chicago og ég fór grátandi heim. Þó allt virtist vonlaust ákvað ég þó að reyna við Bandaríska sendiráðið í Kaupmannahöfn. Ef nokkuð vesen: myndatöku, umsóknareyðublaðafyllerí, fingrafaragjöf og 600 króna borgun fékk ég visa til Bandaríkjanna klukkan 14:00 á fimmtudaginn, 7 tímum eftir að hafa verið meinað að fljúga. Visað gildir í 10 ár, þó svo vegabréfið mitt renni út á næsta ári. Eftir að hafa reddað vegabréfinu var næst að breyta miðanum. Gekk það áfallalaust og klukkan 15:00 var allt komið í höfn og ég tilbúinn að fara til Chicago. Í Chicago, eða nánar tiltekið Evanston, búa Dr. Kári Ragnarsson og Dr. Bridget Tanner. Þau giftu sig á laugardaginn. Grípum niðrí samtali mínu (hér eftir kallaður ÞÓ) við vegabréfaskoðunarmanninn (hér eftir kallaður USA) á O'Hare flugvellinum í Chicago (lausleg þýðing í boði Købstædernes Forsikring): USA: Hvað ands.... vilt þú til Bandaríkjanna? ÞÓ: Er á leið í brúðkaup hjá íslenskum vini mínum og bandarískrar unnustu hans. USA: Ertu með boðskortið? ÞÓ: Nei! USA: Ætlar þú bara að vera boðflenna [innskot þýðanda:] og éta og drekka alla undir borðið? ÞÓ: Nei, mér var boðið. USA: Ætlar þú að halda ræðu í brúðkaupinu? ÞÓ: Nei! USA: Vinstri vísifingur á skanna!... Hægri vísifingur á skanna! ... Horfðu framan í myndavélina! ÞÓ: Takk fyrir. Þórir
Posted by ?O/VHE
at 12:01 AM EDT
Friday, 23 March 2007
Thorir ? Chicago
Hér sit ég med raud, glansandi augu og sultardropa í nefinu...... thó ekki vegna grasekkjuskabsins, heldur vegna "Efter brylluppet" sem ég var ad horfa á rétt ádan. Váhhh, áhrifarík og verulega gód mynd - mæli med henni fyrir alla. Thórir komst til USA ad lokum, sólarhring of seint. Løng saga sem ég eftirlæt honum ad segja hér. Heyrumst
Posted by ?O/VHE
at 6:16 PM EDT
Friday, 16 March 2007
Jamms... svosem ekki mikið að gerast:) Það er vor í lofti hér Kaupmannahöfn og farið að færast líf í kollegíliðið og fólk farið að mæta með kaffi út á róló.... og krakkarnir búnir að leggja kuldagöllunum í bili. Ég er að fara út að borða í kvöld með börnegrúppunni á Reef'n Beef.... ætla annað hvort að fá mér krókódílakjöt eða ástralskt nautakjöt, nammmm. Síðan er lokadjamm með skólafélögum mínum á eftir. Hmmm... er óttalega andlaus Védís
Posted by ?O/VHE
at 4:46 AM EDT
Thursday, 8 March 2007
Loksins buin.....
...... í þessu fja........ prófi. Mikið var ég orðin þreytt á þessu, en nú er það búið og ég í það minnsta komin áfram. Einkunin svosem ekki alveg sú hæsta sem ég hef fengið en ég er sátt miðað við allt og allt. Framundan eru svo tveir kúrsar, annar í tölfræði og faraldsfræði og hinn í heislueflingu og forvörnum og í þessum kúrsum eru bara verkefni, engin próf sem betur fer. Síðan er það bara ritgerðin sem ég ætti að geta byrjað á í sumar...... tíminn líður hratt:) Af familíunni er fínt að frétta, við erum að fara í sumarhús í Svíþjóð um páskanna með matarklúbbnum okkar. 6 fullorðnir og 6 krakkar á aldrinum 1/2 til 4 ára. Stuð:) Síðan er Þórir að fara til USA núna í lok mars í brúðkaupið hjá Kára og Bridget.... og er búin að lofa að kaupa eitthvað handa mér:-/ (doldið spæld yfir að komast ekki með). Og síðast en ekki síst erum við búin að kaupa far til Íslands í sumar. Krakkarnir ætla að fara með Ella afa og Habbý ömmu til Íslands fyrst og síðan kem ég 29.júní og Þórir svo 6. júlí. Þetta verður það lengsta sem ég hef verið í burtu frá krílunum mínum, hef verið samtals 5 nætur frá Fjalari og 3 nætur frá Auði..... (veit þetta er ekki heilbrigt en svona verður þetta þegar maður býr langt í burtu). Mig er strax byrjað að kvíða fyrir, verður örugglega miklu erfiðara fyrir mig en þau:) En vona bara að það verði sól svo ég geti legið á ströndinni allan tímann. Síðasta ferðalagið sem er skipulagt þetta árið er Færeyjaferð í ágúst en þá ætlar öll mín familía að hittast hjá Sigga bró í tilefni af sextugsafmæli föður míns. Eflaust eiga ferðalögin eftir að verða fleiri, við þurfum allavega að fara til Stokkhólms í heimsókn til Kristáns og Stellu og Áslaugar...... kannski verður það haustfríið.... En nóg um ferðalög í bili. Nú þarf ég að byrja að leita mér að efni fyrir mastersritgerðina. Eins og stendur geri ég ráð fyrir að efnið verði Stress - vinnuumhverfi - þunglyndi, mjög spennandi! þar til síðar, vinir og vandamenn
Posted by ?O/VHE
at 3:39 AM EST
Wednesday, 28 February 2007
H?ttur
Fjalar Hrafn er hættur með snuddu! Fjalar fór til tannlæknis með leikskólanum í fyrradag. Þar var honum tilkynnt að hann ætti að hætta með snuddu. Allan daginn var hann alveg á því að hann ætlaði ekki að nota snuddu hér eftir. Við ákváðum því að nota tækifærið og tókum snuddurnar. Það tók hann klukkutíma að sofna og þar af öskraði hann í 40 mínútur. Hann vaknaði svo um nóttina og fékk að koma yfir og sofa á milli. Það gekk hins vegar mjög vel í gærkveldi en aftur vaknaði hann þó í nótt og fékk að koma yfir. Við erum ansi ánægð með að hafa stokkið á þetta tækifæri því við höfum dregið það allt of lengi að taka snuddurnar af honum. Þá má vel vera að þetta hafi gerst á svolítið kaldan hátt en það er ekki aftur snúið. Leikskólastjórinn á leikskólanum hans Fjalars Hrafns er búinn að tilkynna okkur það að Auður Ísold sé komin með pláss þar frá og með næsta sumri. Þórir
Posted by ?O/VHE
at 2:47 PM EST
Saturday, 17 February 2007
Prinsessan
Það var fastelavn hjá Auði Ísold í leikskolanum í gær. Fastelavn er reyndar ekki fyrr en á sunnudaginn en Svanereden tók smá forskot á sæluna. Fyrir þremur vikum fórum við í Fastelavns-búninga leiðangur með börnin og keyptum Batman-búining á Fjalar. Auður Ísold átti í fyrstu að fá Spiderman-búning en svo var tekin ákvörðun um að hún ætti að vera prinsessa eins og allar ungar stúlkur. Alveg fram á síðasta dag var hún ákveðin í að vera prinsessa en seint á fimmtudagskvöldið snérist henni hugur og ákvað að vera Tiger. Til allar hamingju var til Tiger búningur sem Fjalar notaði síðasta ár og fór því heimasætan sem Tiger á Fastelavn þetta árið. Þórir
Posted by ?O/VHE
at 4:00 AM EST
Newer | Latest | Older
|
|
|