« December 2009 »
S M T W T F S
1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31
You are not logged in. Log in
Entries by Topic
All topics  «
Dagbokin
Wednesday, 13 June 2007

Helvítis, andskotans, djöfulsins, fyrirvirðulegu, ómerkilegu, lítilsverðu, aumingjalegu óþokkar....... að stela hjóli frá 4 ára barni.  Ég er svo reið að mig langar til að garga!!! Það er eins gott að ég hitti ekki þjófana sem stálu hjólinu hans Fjalars neitt í bráð - veit hreinlega ekki hvað ég myndi gera!

Védís


Posted by ?O/VHE at 3:27 AM EDT
Monday, 11 June 2007
Hreint ?t sagt, Fj?lskylduhelgi

Síðasta helgi var virkilega skemmtileg.  Á föstudaginn fórum við á okkar síðustu sumarhátið á Svanereden, þá fjórðu í röðinni.  Að venju var drekkhlaðið veisluborð, öl og vín á boðstólnum.  Á laugardeginum var svo farið í Vestskoven í Albertslund, þar sem leikskólinn hans Fjalar og brátt Auðar, hefur aðsetur.  Þar er nefnilega á hverju ári haldinn vinnudagur þar sem allt er tekið í gegn.  Auk þrifa fengum við íslensku feðurnir það verkefni að setja upp nokkurs konar þrautabraut fyrir krakkana.  Það saman stendur af mislöngum trjádrumbum sem börnin geta svo gengið eftir.  Þessi vinna fól í sér að grafa 9 40 cm x 40 cm x 30 cm holur auk þess að saga drumbana niður.  Fyrst fengum við aðstoð frá keðjusög en eftir að hafa sagað 5 drumba gaf sögin upp öndina vegna hita (28 stiga hiti, glampandi sól og andvari var í Albertslund þennan dag).  Það þýddi bara eitt, handsögin tekin fram og sagað!  Það getur verið ansi erfitt fyrir skrifstofumann eins og mig að vakna upp daginn eftir og finna fyrir öllum vöðvunum í líkamanum.  Auk þess fékk ég ekki að sofa út vegna hins vikulega pabbamorguns sem var á sunnudaginn.   Eftir skemmitlega helgi sá Fjalar svo um að útbúa pulsu með öllu handa föður sínum í sunnudagsmatinn.

Þórir


Posted by ?O/VHE at 12:01 AM EDT
Sunday, 3 June 2007
Dottir min er skondin litil stelpa.

Þegar Auður Ísold vaknar á nóttunni gerir hún eftirfarandi: kveikir á lampanum sínum, finnur dudduna sína, Kötu Kanínu, Litla Lambið, Dísu og Lilla Baby og kemur síðan með með alla hersinguna inn til okkar og skríður á milli, oftast án þess að við verðum vör við hana. Aumingja Fjalar Hrafn verður síðan bara að sofa með kveikt ljósið það sem eftir er næturinnar.

Auður Ísold er að hætta á bleyju og það gengur ekki alveg þrautalaust fyrir sig því hún er ekkert of æst í að sitja á koppnum. Móðirinn heyrði af öðru barni sem hafði verið mútað þannig að það fékk eitt nammi í hvert skipti sem það fór á klósettið....... og ákvað að reyna slíkt hið sama! En nei, ef eitthvað var þá tvíefldist Auður Ísold í þvermóðskunni og þvertók fyrir að setjast á koppinn. Eftir stutt hlé ákvað móðirinn að nota aðra strategíu sem er að lesa fyrir dótturina bækur meðan hún situr á koppnum. Og viti menn, Auður Ísold situr sem fastast og þegar fyrsta bókin er búin þá kemur..... "en til.... allersidste gang" , frasi sem er óspart notaður þessa daganna.

Frekar fyndið, bækur fram yfir nammi:)

Védís


Posted by ?O/VHE at 4:18 AM EDT
Monday, 21 May 2007
Akvar

Ég fór með börnin í Danmarks Akvarium á laugardaginn.  Er þetta í fyrsta sinn sem við kíkjum þar við, og líklega það síðasta :(  Við lögðum eldsnemma af stað, nánar tiltekið kl. 9 og vorum komin rétt fyrir opnun, klukkutima síðar.  Í safninu eru ábyggilega 100 fiskabúr og eftir að hafa skoðað 5, er maður búinn að fá algerlega nóg af fiskabúrum.  Innst er þó eitt risastórt fiskabúr með hákörlunum sem bjargar þessu aðeins, en ekki nóg til að áhugi sé að fara þarna aftur.  Í kjallaranum er boðið upp á að handleika krappa og ígulker, en börnin höfðu ekki neinn áhuga á því.  Því drífum við okkur að borða nestið og fórum svo heim.  Vorum reyndar ekki komið heim aftur fyrr en að ganga tvö, eftir að hafa skoðað vel garðinn í Charlottenlund.  Védís nýtti tíma vel og lærði á meðan á ferðalagi okkar barnanna stóð.

Í gær var svo að venju pabbaklúbbur.  Að þessu sinni mætti ég eingöngu með Auði Ísold, þar sem Fjalar var eitthvað illa fyrir kallaður þegar hann vaknaði.  Það er s.s. orðin hefð fyrir því að feðurnir á kolligienu hittast á sunnudagsmorgnum klukkan níu með börnin sín.  Valin er einhver leikvöllur og leikið sér fram yfir hádegi.

Þórir


Posted by ?O/VHE at 12:01 AM EDT
Monday, 14 May 2007
Koloni

Fjalar Hrafn átti mjög góða dvöl í Koloni rétt fyrir utan Skibby á Sjálandi.  Ég fór, ásamt fulltrúa frá hverju barni, í rútuferð síðastliðinn föstudag og sótti Fjalar.  Fyrsti klukkutíminn fór í að Fjalar sýndi mér staðhætti, hvar kojan hans var, hvar þau borðuðu, hvar þau pissuðu og hvar kvöldvökurnar voru haldnar.  Svo var að sjálfsögðu gengið um garðinn og allt þar sýnt.  Hann var mjög mjög ánægður eftir ferðina og sofnaði glaður í rútunni á leiðinni heim.  Ég held að hann hafi elst nokkuð við þetta ævintýri.

Þórir


Posted by ?O/VHE at 12:01 AM EDT
Thursday, 10 May 2007
Fotboltaahorf

Ég hef verið nokkuð duglegur að fara á Parken i vetur.  Síðan í desember hef ég séð FCK fjórum sinnum, þar af 3 á síðusta mánuði.  Þar áður hafði ég séð FCK spila tvisvar við Brøndby (3-0 og 0-0) og danka landsliðið vinna Grikki 1-0 í undankeppni heimsmeistaramótsins (var reyndar á klósetinu þegar markið var skorað á 44. mínútu)  Í desember sá ég FCK vinna Glasgow Celtic 3-1 í meistaradeild Evrópu.  Í apríl sá ég svo FCK gera jafntefli 1-1 við FC Nordsjælland og vinna OB 4-2.  Síðasta laugardag sá ég þá hvítu svo bíða lægri hlut fyrir Aab 1-2.  Tapið varð til þess að fresta danska titlinum.  Eftirá að hyggja held ég að það hafi verið gert viljandi.  Næsti leikur var nefnilega í gærkveldi á Brøndby Stadion, sem ég mætti ásamt Jesper og Henrik.  Leikinn unnu FCK 0-1 og urðu því Danskir Meistarar á heimavelli erkifjendanna.  Eitt má Brøndby þó eiga, pulsurnar á Brøndby Stadion eru f... góðar.

Þórir


Posted by ?O/VHE at 1:32 PM EDT
Tuesday, 8 May 2007
Skr?tin tilfinning

Fjalar Hrafn er farin í fyrsta skólaferdalagid sitt, eda rettara sagt leikskólaferdalag! Thau løgdu af stad kl. 9:30 í morgun og munu vera í burtu í 3 nætur. Thad var skrítin tilfinning ad pakka nidur føtum, sæng, kodda og tannbursta 3 ára son sinn og engu fyrir sjálfan sig...... Enn skrítnara fannst mér thó ad segja honum ad vettlingarnir væru í thessu hólfi, regnføtin í ødru hólfi og nestid í bakpokanum - finnst hann eiginlega bara vera of lítill til ad fara í svona lengi í burtu...... en thad er víst ungamømmugenid sem talar.

En thad besta vid thetta er ad á sama tíma ad ári munum vid Thorir eiga "frí"daga thegar bædi børnin okkar fara í koloni.... 

Védís


Posted by ?O/VHE at 4:05 AM EDT
Updated: Tuesday, 8 May 2007 4:07 AM EDT
Monday, 30 April 2007
Papp?rslaust

Fór til Odense í dag.  Að þessu sinni fór ég vegna vinnunnar enda þekki ég engan í Odense lengur.  Ferðinni var heitið í lítið tryggingafélag, Popermo, sem er kannski ekki til frásögu færandi nema hvað að þetta fyrirtæki er eins pappírslaust og fyrirtæki getur orðið.  Á hverjum morgni þegar pósturinn kemur er hann allur skannaður inn, og dreifist svo á rétta aðila.  Hver starfsmaður er með stóran skjá sem getur rúmað tvö A4 blöð og góða upplausn svo auðveldlega er hægt að lesa tímunum saman af honum.  All er mjög nýtískulegt við húsið og innanstokksmuni, enda ekki nema hálft ár síðan fyrirtækið flutti inn.  Lítið er um hillur og þar af leiðandi engar möppur.  Ástæðan fyrir þessari pappírslausu stefnu má rekja til Arkitekta hússins sem neituðu með öllu að hafa hillur í húsinu, það passaði ekki við.  Smátt og smátt er svo verið að skanna inn allan eldri pappír sem fylgt hefur fyrirtækinu síðan 1963.

Þórir


Posted by ?O/VHE at 12:01 AM EDT
Saturday, 28 April 2007
Fj?lskyldudagur

Fórum í Tivoli í dag.  Lögðum af stað klukkan 10 í morgun og hjóluðum sem leið lá niður í bæ.  Klukkan 11 opnaði svo Tivoli og Fjalar Hrafn eignaðist sitt fyrsta árskort.  Ekki nóg með það, heldur var keyptur Turpas handa honum.  Hann fór svo með föður sínum í mörg tæki.  Auður Isold fékk ekkert árskort og engan turpas.  Það mun þó breytast næsta sumar, reyndar borgar sig þá að kaupa fjölskyldukort.  Auður Ísold fékk þó að fara í nokkur tæki, hringeykjuna, flugvelarnar og sjóræningaskipin.  Skipaferðin var reyndar mjög stutt, var ekki alveg að höndla hraðann.  Komum heim hálf fjögur eftir mjög skemmtilegan fjölskyldudag.

Þórir


Posted by ?O/VHE at 10:24 AM EDT
Thursday, 19 April 2007

Auður Ísold er komin með leikskólapláss frá 16. júní n.k. akkúrat einu ári á eftir bróður sínum, upp á dag. Fyrir okkur markar þetta tímamót því nú er hún orðin stór krakki en ekki lengur lítill ungi sem er á vöggustofu.


Posted by ?O/VHE at 5:26 PM EDT

Newer | Latest | Older