Síðasta helgi var virkilega skemmtileg. Á föstudaginn fórum við á okkar síðustu sumarhátið á Svanereden, þá fjórðu í röðinni. Að venju var drekkhlaðið veisluborð, öl og vín á boðstólnum. Á laugardeginum var svo farið í Vestskoven í Albertslund, þar sem leikskólinn hans Fjalar og brátt Auðar, hefur aðsetur. Þar er nefnilega á hverju ári haldinn vinnudagur þar sem allt er tekið í gegn. Auk þrifa fengum við íslensku feðurnir það verkefni að setja upp nokkurs konar þrautabraut fyrir krakkana. Það saman stendur af mislöngum trjádrumbum sem börnin geta svo gengið eftir. Þessi vinna fól í sér að grafa 9 40 cm x 40 cm x 30 cm holur auk þess að saga drumbana niður. Fyrst fengum við aðstoð frá keðjusög en eftir að hafa sagað 5 drumba gaf sögin upp öndina vegna hita (28 stiga hiti, glampandi sól og andvari var í Albertslund þennan dag). Það þýddi bara eitt, handsögin tekin fram og sagað! Það getur verið ansi erfitt fyrir skrifstofumann eins og mig að vakna upp daginn eftir og finna fyrir öllum vöðvunum í líkamanum. Auk þess fékk ég ekki að sofa út vegna hins vikulega pabbamorguns sem var á sunnudaginn. Eftir skemmitlega helgi sá Fjalar svo um að útbúa pulsu með öllu handa föður sínum í sunnudagsmatinn.
Þórir