Ég fór með börnin í Danmarks Akvarium á laugardaginn. Er þetta í fyrsta sinn sem við kíkjum þar við, og líklega það síðasta :( Við lögðum eldsnemma af stað, nánar tiltekið kl. 9 og vorum komin rétt fyrir opnun, klukkutima síðar. Í safninu eru ábyggilega 100 fiskabúr og eftir að hafa skoðað 5, er maður búinn að fá algerlega nóg af fiskabúrum. Innst er þó eitt risastórt fiskabúr með hákörlunum sem bjargar þessu aðeins, en ekki nóg til að áhugi sé að fara þarna aftur. Í kjallaranum er boðið upp á að handleika krappa og ígulker, en börnin höfðu ekki neinn áhuga á því. Því drífum við okkur að borða nestið og fórum svo heim. Vorum reyndar ekki komið heim aftur fyrr en að ganga tvö, eftir að hafa skoðað vel garðinn í Charlottenlund. Védís nýtti tíma vel og lærði á meðan á ferðalagi okkar barnanna stóð.
Í gær var svo að venju pabbaklúbbur. Að þessu sinni mætti ég eingöngu með Auði Ísold, þar sem Fjalar var eitthvað illa fyrir kallaður þegar hann vaknaði. Það er s.s. orðin hefð fyrir því að feðurnir á kolligienu hittast á sunnudagsmorgnum klukkan níu með börnin sín. Valin er einhver leikvöllur og leikið sér fram yfir hádegi.
Þórir