Fór til Odense í dag. Að þessu sinni fór ég vegna vinnunnar enda þekki ég engan í Odense lengur. Ferðinni var heitið í lítið tryggingafélag, Popermo, sem er kannski ekki til frásögu færandi nema hvað að þetta fyrirtæki er eins pappírslaust og fyrirtæki getur orðið. Á hverjum morgni þegar pósturinn kemur er hann allur skannaður inn, og dreifist svo á rétta aðila. Hver starfsmaður er með stóran skjá sem getur rúmað tvö A4 blöð og góða upplausn svo auðveldlega er hægt að lesa tímunum saman af honum. All er mjög nýtískulegt við húsið og innanstokksmuni, enda ekki nema hálft ár síðan fyrirtækið flutti inn. Lítið er um hillur og þar af leiðandi engar möppur. Ástæðan fyrir þessari pappírslausu stefnu má rekja til Arkitekta hússins sem neituðu með öllu að hafa hillur í húsinu, það passaði ekki við. Smátt og smátt er svo verið að skanna inn allan eldri pappír sem fylgt hefur fyrirtækinu síðan 1963.
Þórir