Fórum í Tivoli í dag. Lögðum af stað klukkan 10 í morgun og hjóluðum sem leið lá niður í bæ. Klukkan 11 opnaði svo Tivoli og Fjalar Hrafn eignaðist sitt fyrsta árskort. Ekki nóg með það, heldur var keyptur Turpas handa honum. Hann fór svo með föður sínum í mörg tæki. Auður Isold fékk ekkert árskort og engan turpas. Það mun þó breytast næsta sumar, reyndar borgar sig þá að kaupa fjölskyldukort. Auður Ísold fékk þó að fara í nokkur tæki, hringeykjuna, flugvelarnar og sjóræningaskipin. Skipaferðin var reyndar mjög stutt, var ekki alveg að höndla hraðann. Komum heim hálf fjögur eftir mjög skemmtilegan fjölskyldudag.
Þórir