Fór út að borða í boði SAS-Institute i gærkveldi. Okkur Tore, yfirmanni mínum hjá Købstædernes Forsikring, var boðið í tilefni af undirskrift samstarfssamings okkar á milli. Fyrir valinu var Formel B, einn af nokkrum Michelin-stjörnu stöðunum í Kaupmannahöfn, en hefur það fram yfir hina að vera með svokallaða "rising star" sem þýðir að mögulega fær staðurinn stjörnu númer tvö á næsta ári. Matseðillinn stóð af eftirfarandi:
- (Einhvers konar) kampavín meðan við pöntuðum
- Tvenns konar appitiserear (man ekki alveg hvað það var)
- Venø Østers med jordskokker, peberrod og brøndkarse
- Slethvar (fiskur) med foie gras ravioli, gulerødder, estragon og citron
- Torsk med glaseret hummer, kålrabi, endive og blodappelsin
- Braiseret kalveskank med små hvidløg, daddeltomat og ramsløg
- Canette (lítil ønd) med stegt foie gras i pain d'épice, rødbede og grønkål
- Ostasmakk
- Passion en surprise med lakridsrodsiscreme og mousse.
Með þessu var svo vínmatseðill sérhannaður fyrir matinn. Að lokum var svo XO koníak og súkkulaði.
Þetta var einu orði sagt gargandisnilld!
Hvernig Foie gras er búið til er dálítið merkilegt, um það má lesa hér.
Þórir