...... í þessu fja........ prófi. Mikið var ég orðin þreytt á þessu, en nú er það búið og ég í það minnsta komin áfram. Einkunin svosem ekki alveg sú hæsta sem ég hef fengið en ég er sátt miðað við allt og allt. Framundan eru svo tveir kúrsar, annar í tölfræði og faraldsfræði og hinn í heislueflingu og forvörnum og í þessum kúrsum eru bara verkefni, engin próf sem betur fer. Síðan er það bara ritgerðin sem ég ætti að geta byrjað á í sumar...... tíminn líður hratt:)
Af familíunni er fínt að frétta, við erum að fara í sumarhús í Svíþjóð um páskanna með matarklúbbnum okkar. 6 fullorðnir og 6 krakkar á aldrinum 1/2 til 4 ára. Stuð:) Síðan er Þórir að fara til USA núna í lok mars í brúðkaupið hjá Kára og Bridget.... og er búin að lofa að kaupa eitthvað handa mér:-/ (doldið spæld yfir að komast ekki með). Og síðast en ekki síst erum við búin að kaupa far til Íslands í sumar. Krakkarnir ætla að fara með Ella afa og Habbý ömmu til Íslands fyrst og síðan kem ég 29.júní og Þórir svo 6. júlí. Þetta verður það lengsta sem ég hef verið í burtu frá krílunum mínum, hef verið samtals 5 nætur frá Fjalari og 3 nætur frá Auði..... (veit þetta er ekki heilbrigt en svona verður þetta þegar maður býr langt í burtu). Mig er strax byrjað að kvíða fyrir, verður örugglega miklu erfiðara fyrir mig en þau:) En vona bara að það verði sól svo ég geti legið á ströndinni allan tímann. Síðasta ferðalagið sem er skipulagt þetta árið er Færeyjaferð í ágúst en þá ætlar öll mín familía að hittast hjá Sigga bró í tilefni af sextugsafmæli föður míns. Eflaust eiga ferðalögin eftir að verða fleiri, við þurfum allavega að fara til Stokkhólms í heimsókn til Kristáns og Stellu og Áslaugar...... kannski verður það haustfríið....
En nóg um ferðalög í bili. Nú þarf ég að byrja að leita mér að efni fyrir mastersritgerðina. Eins og stendur geri ég ráð fyrir að efnið verði Stress - vinnuumhverfi - þunglyndi, mjög spennandi!
þar til síðar, vinir og vandamenn