Fjalar Hrafn er hættur með snuddu!
Fjalar fór til tannlæknis með leikskólanum í fyrradag. Þar var honum tilkynnt að hann ætti að hætta með snuddu. Allan daginn var hann alveg á því að hann ætlaði ekki að nota snuddu hér eftir. Við ákváðum því að nota tækifærið og tókum snuddurnar. Það tók hann klukkutíma að sofna og þar af öskraði hann í 40 mínútur. Hann vaknaði svo um nóttina og fékk að koma yfir og sofa á milli. Það gekk hins vegar mjög vel í gærkveldi en aftur vaknaði hann þó í nótt og fékk að koma yfir. Við erum ansi ánægð með að hafa stokkið á þetta tækifæri því við höfum dregið það allt of lengi að taka snuddurnar af honum. Þá má vel vera að þetta hafi gerst á svolítið kaldan hátt en það er ekki aftur snúið.
Leikskólastjórinn á leikskólanum hans Fjalars Hrafns er búinn að tilkynna okkur það að Auður Ísold sé komin með pláss þar frá og með næsta sumri.
Þórir