Það var fastelavn hjá Auði Ísold í leikskolanum í gær. Fastelavn er reyndar ekki fyrr en á sunnudaginn en Svanereden tók smá forskot á sæluna. Fyrir þremur vikum fórum við í Fastelavns-búninga leiðangur með börnin og keyptum Batman-búining á Fjalar. Auður Ísold átti í fyrstu að fá Spiderman-búning en svo var tekin ákvörðun um að hún ætti að vera prinsessa eins og allar ungar stúlkur. Alveg fram á síðasta dag var hún ákveðin í að vera prinsessa en seint á fimmtudagskvöldið snérist henni hugur og ákvað að vera Tiger. Til allar hamingju var til Tiger búningur sem Fjalar notaði síðasta ár og fór því heimasætan sem Tiger á Fastelavn þetta árið.
Þórir
Posted by ?O/VHE
at 4:00 AM EST